28 December 2008



Í dag fór ég á fyrsta jólaballið mitt.  Það var bara alveg ágætt og m.a.s. frekar gaman :-), en það var alveg augljóst að mömmum mínum fannst það enn skemmtilegra........en ég er nú alveg til í að gera ýmislegt fyrir þær.......
Maður þurfti náttúrulega að láta taka myndir af sér fyrst í jólafötunum, það finnst þeim voðalega gaman.



Þó að ég sé hér með vinkonum mínum þeim Gabríellu og Evu Lilju, fannst mér eiginlega lang mest spennandi að á gófinu var millistykki með slökkvara!
Hér erum við í leik, svoldið asnalegum, því hann segir að það eina sem að litlar stelpur geri sé að þvo þvott eða strauja...............
Svo var kallinn á orgelinu voðalega áhugaverður !

No comments: